því miður verður Musherice 2022 frestað vegna óviðráðanlegrar aðstæðna í þjóðfélaginu til ársins 2023 og er skráning hafin í Musherice 2023.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Áskorunar keppni Musherice
12 feb 2022 - 30 mars 2022
Þar sem því miður þarf að hætta við Musherice 2022
Hefur Musherice ákveðið að setja upp Áskorunar keppni.
með einföldum reglum og eru ein verðlaun að verðmæti 28000 kr Gjafabréf sem er skráning í Musherice hlaupið 2023 sem verður haldið á hinum fallega stað á Norðurlandi og nefnist Húsavík.
En svona virkar Áskorunar keppnin.
Hver og einn Musher hleipur í sinni heimabyggð
Og velur sér fimm daga í röð sem áskorunardaga
'Askorunar dagarnir byrja á miðnætti og enda á miðnætti 5 dögum seinna.
nota má minnst 2 hunda í einu annars eins marga og hver vill í hvert skipti.
það má nota reiðhjól ,scooter , vagna, gönguskíði og hundasleða einnig má skokka eða ganga .
OK hér koma reglurnar
Allir sem taka þátt þurfa að hafa app í símanum sem sínir staðsetningu tíma og hraða (meðalhraða) og nota það á þeim tíma sem áskorun er
og deila hverri ferð inn .
það sem keppandi þarf að deila er
D1: Nöfn hunda
Hvaða fimm daga tímabik á að taka og senda inn program fyrir tímabilið
Tími start yfir hvern dag
Tími endir yfir hvern dag
Km yfir daginn
Meðalhraði yfir daginn
Senda mynd eða video þegar verið er að gefa millibita eða máltíð á mið línu
muna að tímamark er 20 tímar í hámark á milli ferða
Dæmi sá sem leggur af stað kl 15,00 fyrsta daginn og er að lágmarki 90 mínutur með hundana í braut og að sinna þeim á línu yrði þá buinn með sína áskorun kl 16,30 þann dag
verður að vera farinn aftur af stað innan 20 tíma sem yrði miðað við tímann 16.30 og yrði þá að vera ekki seinna af stað í næsta dag en 12.30 og svo framvegis.
Það má fara 2 sinnum út í braut sama dag en hundarnir verða að vera þaug sömu og í fyrri ferðinni
þettað er 5 daga áskorun með það að markmiði að komast sem næst eða yfir 100 km á þeim tíma
ekki vera stittra en 90 mínútur með sömu hunda á dag
ekki má líða meira en 20 klukkustundir á milli ferða
skilda er að gefa hundum á línu minnst einu sinni á 20 klukkustundar fresti og senda video af því í viðhengi á email musherice@gmail.com
verður líka fengið leifi til að deila á musherice facebook síðunni má að sjálfsögðu senda fleiri myndir og video
meðalhraði í ferð á 20 tíma fresti má ekki vera meiri en 18 km hraði
aldur hunda má ekki vera yngri en 18 mánaða
Skrá þarf alla hunda sem á að nota í Áskorunar keppnina
ekki þarf að nota sömu hunda á hverjum degi en ekki má skipta út innan 20 kl tímaramma fyrir hvern dag
Taka má hund úr teymi yfir daginn og má sá hundur ekki vera með aftur þann dag en má koma inn í teimið aftur næsta dag og hann er tekinn úr teymi.
Musher og eigendur taka þátt alfarið á eigin forsendum og tryggingum bæði fyrir hunda og keppendur.
Gerum þettað saman og höfum gaman :)
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
MusherIce LD Iceland
Dagana 16 - 29 Feb 2023
MusherIce LD Iceland er lengsta hundasleðahlaup á Íslandi
Hvert teymi telur Musher(sá sem keyrir sleðann)Handler(er manneskja sem hjálpar Musher á Hvíldastöðum og þrífur upp eftir hundana á hverjum Hvíldarstað eftir að Musher er farinn í braut )og að sjálfsögðu hetjurnar í hlaupinu Hundarnir sem eru mest 8 í starti en minnst 6 í starti ljúka má keppni með 5 hunda í endamark þar af má vera 1 í sleða.
Lágmarksaldur hunda er 18 mánaðar og lágmarksaldur keppenda 18 ára.
Keppendur í Musherice LD Iceland
Skráning er í gangi
Fyrir árið 2023
Skráningtími til
15 des 2022
Keppnisgjald 28000 kr
Til að skrá sig þarf að fara í Skráning og Reglur
Hlökkum til að sjá ykkur :)
Nú er frumraun og fyrsta LD (Long Distance) hundasleðahlaup á Íslandi Búið Februar 2021
Heppnaðist það með frábærum hætti Þar komu Björgunarsveitin Garðar frá Húsavík
https://www.facebook.com/BjorgunarsveitinGardar/
Og þökkum við þeim Hjartanlega fyrir þeirra framtak við uppsetningu brautar að hafa og öryggi í hlaupinu.
4x4 Klubburinn í Húsavík komu einnig mjög svo sterkir og flottir inn í uppsetningu á hlaupinu án þeirra hefði þettað ekki verið möguleiki þar sem 4x4 kluppurinn lánaði okkur aðstöðu í skálanum þeirra sem er alveg geggjað flottur og þökkum við þeim allveg hjartanleg fyrir þeirra framtak.
Svo má að sjálfsögðu ekki gleima þökkum til Húsavíkur bæjar sem lánaði okkur stikur til að brauta með og aðgang að tjalst´ði Húsavíkur til að starta hlaupinu og enda hlaupið og þökkum við þeim einnig hjartanlega fyrir þeirra framtak .
Hlökkum við til að koma aftur 2022 :)
Nú er frunraun Musherice 150 km lokið og hlökkum við til næsta hlaups sem er daganna 17-20 febrúar 2022 frá Húsavík.
Það voru 3 keppendur skráðir 2021
Palli Tryggvi Karlsson forfallaðist fyrir hlaup
Erna Sofie Árnadóttir 'akvað að hætta hlaupi eftir 64 km sem er alveg svakalega góður árangur
Hilmar Freyr Birgisson Kláraði hlaupið með glæsibrag og er hann eini Íslendingurinn sem hefur klárað 150 km Long Distance hundasleðahlaup sem haldið hefur verið á Íslandi
Komu hann og hundarnir mjög flottir og fínir í mark sem algjörar hetjur og óskar Musherice Hilmari til hamingju með þennan frábæra árangur.